Feitt blogg.........
Jæja.. þá er maður komin frá Spáni.. og byrjuð að vinna á fullu djöfullinn hafi það.. ! leiðinlegt að vinna, í leiðinlegri vinnu....Ný tölva, nýtt blogg..
yeahh... við eða Ingi var að kaupa sér nýja tölvu.. Apple tölvu.. ekki fartölvu heldur svona borðtölvu og það er geggjað heimilislegt hjá okkur núna þegar það er komin borðtölva.. heh.. en já.. svo fórum við í Rúmfó og keyptum okkur skrifborð og tölvustól.. bara eitthvað drasl til að byrja með.. þetta er geggjað kósí.. enda er Ingi minn alveg að missa sig yfir þessari tölvu, enginn kassi eða neitt, bara stór skjár, þráðlaust lyklaborð, þrjáðlaus mús og engar snúrur.. geggjað.. :) en já.. annars hef ég nú ekkert mikið að segja.. ætti nú reyndar að vera að læra undir próf núna, er að fara í íslensku 303 í fyrramálið.. vona að ég nái... ég býst nú samt ekki við því því að ég er búin að mæta geðveikt illa í þessa tíma, varð svo lasin þarna einu sinni og svo fékk ég sýkingu í nýrun..og eins og ég er, gleymi öllu, þá nottla gleymdi ég alltaf að fá læknisvottorð.. væri soltið kjánalegt að fara að hringja núna bara.. heyrðu, ég var veik þarna í viku í september.. uhh.. já.. nei!!..........
huh humm..!! lélegur bloggari?? mmm hell yeahh..!
ég var í fríi í allan dag!! :D nema núna.. er að mæta í skólann klukkan korter í 3!! til 20 mín. í 6!!.. arg..
Djöfull er gott veður úti maður..! Mig langar í sund.. hverjum langar í suuuuund..????
Amanda, kannski þú komir með mér í bikiníinu hennar Jöru... múhaha...!
uhh.. hata þegar það er svona langt síðan maður hefur bloggar þá veit maður ekkert hvað maður á að segja..
Harpa og Jói komu seinustu helgi.. við Ingi kíktum með þeim út á lífið á laugardeginum.. fórum í party til Ásdísar og Jón Helga.. geggjuð íbúð by the way! Ég fékk mér öl í hönd og fór að spila drykkjuleikinn og spilið "Hæ Gosi" :) jeijj.. það var nokkuð gaman, sérstaklega afþví að stelpan sem var lang drukknust rústaði okkur... ! hah.. en svo fórum við bara niðrí bæ á kaffi akureyri.. tókum nokkra rúnta áður og svona, pissuðum einhverstaðar á bryggjunni.. höh hömm..! :) og svo skelltum við okkur á kaffi akureyri og dönsuðum og dönsuðum.. ég hitti Hönnu frænku mína (systir mömmu).. hún hafði aldrei séð mig fulla þannig að henni fannst það voða gaman.. :) en þegar að það var farið að renna af mér varð ég svolítið þreytt og við fórum bara heim klukkan 3 eða eitthvað.. hef held ég aldrei farið svona snemma heim af djamminu.. :) jæja.. svo daginn eftir fór ég bara að vinna, og líka í gær.. úff.. mig kvíður bara fyrir þegar að skólinn er búinn því að þá byrja ég að vinna svo mikið.. verð að vinna sennilega bara í öllu.. uppvaski, heimsendingu, þjóni og bara öllu.. er samt búin að biðja verkstjórann minn eða hvað það kallast að fara nú ekki í ræstingar .. ó mæ lord nei takk!!! Væri alveg til í að skella mér í þjóninn.. :) þó að ég vilji nú alls ekki verða það í framtíðinni.. ó niii.. pabbi minn er lærður þjónn og hann er búinn að segja mér að þetta sé það leiðinlegasta í heimi.. og mamma var nottla þjónn í 20 og eitthvað ár og hún segir einmitt líka að ég ætti ekki að hafa þetta sem framtíðarstarf.. nii.. mig langar sko að vinna svona klukkan 8 á morgnanna til 4-5 á daginn.. og ekki um helgar.. ohh.. það yrði yndislegt.. :) sérstaklega þegar maður verður búinn að unga út nokkrum ;) .. ókei nú er ég komin í eitthvað bull :) allavena að þá var ég líka að fá mér nýjan kisa.. JEEIIIJJ... :) fjórða tilraun..! :) en þessi er algjört yndi.. :) æðisleg kisa.. er búin að skýra hana Tásu ;) hún allavena pissar í kassan sinn og svona og grefur yfir.. munur er það.. því kisinn sem ég átti þar á undan kúkaði í baðið eða á gólfið og gróf á þvottavélinni.. :/ held að hann hafi verið pinu þroskaheftur... geta kettir verið þroskaheftir..?? það hlítur að vera.. =)
Það styttist og styttist í ferðina til spánar.. ohh.. get ekki beðiiiiiið.. =)
Mamma var að koma frá london.. hún keypti handa mér nærföt.. hvít blúndu, og ljósbleik með rauðum hjörtum.. ógeðslega flott.. og það besta var að þau SMELLpössuðu á mig.. flott maður, get alltaf sent mömmu út að kaupa handa mér nærföt.. :) gaman að þvíí.. :)
djöfull var ég samt pirruð þegar að ég kom því að mamma var búin að kaupa sér nýjar gallabuxur og var geggjað flott í þeim og hún er 10 X mjórri heldur en ég..! djöfull..
það er orðið ljótt þegar mamma manns er orðinn flottari en maður sjálfur.. ! en kortið mitt í ræktinni er búið..! :O þannig hvað skal maður gera.. verð að fara að fara út að hlaupa.. hata bara að hlaupa, leiðinlegt og ég er með ógeðslega lélegt þol.. ! eeen.. eitthvað verður maður að gera til að verða flottari heldur en MAMMA SÍN!
Heyrðu jæja.. kennarinn er kominn og ég nenni ekki að blogga meira.. :) have a good reading.. ;) !
Chao Bella.........
~LATER...
Truly, Madly Deeply...
Ohh.. ég sit hérna að bíða eftir að ég fari í vinnuna, sem að ég er enganvegin að nenna.. garg.. er að loka í dag, á morgun, lau og sun..! ekki sátt..! jæja.. ég skal þá bara fá feitt útborgað næsta mánuð.. hell jee.. verð að fara að safna fyrir þessa ferð í sumar.. öss hvað mig hlakkar til.. :D uu man ekki hvort að ég sé búin að segja frá því áður en allavena að þá erum við að fara í einhvern bæ rétt hjá Torreveja á spáni.. afi ver'ur 70 ára 17.júní.. þannig að við erum að fara mjög mörg, við fjölskyldan, 4 systur mömmu, makar þeirra, börn og tengdarbörn :) geggjað geggjað.. :) legjum nokkrar íbúðir fyrir okkur í einhverju húsi.. og verðum með sundlaug í garðinum og svona .. jesús minn hvað mig hlakkar til þegar ég fer að tala um þetta.. :D:D:DJæja.. allavena hef ég ekki verið að gera neitt mikið.. nottla bara skólinn og vinnan eins og alltaf..
Það var árshátíð Greifans síðasta mánudag, það var rosa gaman.. góður matur og svona.. Ingi minn skemmti sér nú ekkert voðalega því að hann þekkti ekkert af þessu liði.. æj hann á eftir að kynnast því seinna.. :) það voru alveg snilldar skemmtiatriði og svona.. strákarnir með myndband sem þeir gerðu og nokkrir með skemmtiatriði, eitt sem var algjör snilld en ég nenni að segja frá því öllu en það átti að koma fólki á óvart með þvó að halda að það ætti að taka utan um mann en fékk bara kinnhest (bitchslap) :D og það var einn þjónn sem þurfti að slá eigandann utanundir og það var það findnasta í heiminum.. :) en svo endaði á því að allir voru fullir að dansa við Hreim og Vignir sem spiluðu fram á nótt.. :) rosa gaman :)
Það er verið að fara að frumsýna "300" myndina í bíó á föstudaginn.. langar geggjað á hana með öllum vinunum sem eru að fara en nei, ég þarf að vera að vinna.. buhu..!!
Æhj ég veit ekki hva skal segja meira.. *hugs hugs****** neibb.. dettur ekkert í hug sem stendur þannig að ég ætla að setja bara enda á þetta blogg mitt... hafa það bara stutt.. :)
Hafið það gott um helgina dömur og herrar.. :)
Love......
LATER~~
I feel like I wanna be, inside you, when the sun goes down~~
Fjögurra daga frí frá skólanum.. jess..!! reyndar að fara að vinna á mánudaginn en ekki fyrr en klukkan 5.. !! :D hmm.. hvað ætti maður að gera í fríinu.. þarf samt að læra helling.. eða teikna helling.. :)... spurning um að baka, djamma, skella sér til ólafsfjarðar.. eitthvað svona fun.. kannski að kíkka í leirböðin á mývatni.. það er alltaf jafn gott.. :)Ég var að lesa bók sem Palli kom með heim frá Danmörku.. geggjuð.. teiknimyndasaga sem heitir Pride of Bagdad.. og fjallar um 4 ljón sem komust af frá sprengjunum þegar það var ráðist á írak.. sönn saga.. ótrúlega góð.. :)
Ég fór í ljós í fyrradag í Abaco.. úff.. brenn eiginlega aldrei í ljósum og sérstaklega ekki Abaco en úff hvað ég brann á bakinu.. :O gat ekki einu sinni gert fótapressu í ræktinni.. :O by the way þá var ég í ræktinni áðan.. geggjuð dugleg ;) alveg búin í löppunum.. svo er ég núna að drekka eplasafa, ferskjuskyr, haframjöl og betagen.. ég ætla mér að verða fit again.. !!
Þvottavélin okkar var að bila í 3 skiptið síðan í nóvember.. !!! ARG.. ! ég hringdi í mömmu og kvartaði og auðvitað fór hún með okkur uppí Byko og sagðist ætla að fá nýja vél.. ! sagði að ef að hún ætti þessa vél þá væri hún löngu búin að koma með hana og henda henni í hausinn á þeim.. hahhaha hún er svo hörð ..! þannig að Ingi er bara að taka allt úr sambandi núna..gaurarnir eru að koma með nýju vélina.. ! :) geggjað.. =)
Mig langar að kaupa mér föööööt.. !!! íhhj...
Mig hlakkar svo til að fara til útlanda að ég er að deyja... :) djöfull ætla ég að liggja í sólbaði maður.. ;) koma alveg svört heim.. :) það verður nú samt örugglega erfitt.. mamma er svo ofvirk að hún fer örugglega með mig í eitthvað ægilegt búðarráp og ég verð ekkert brún nema í andlitinu og höndunum.. hehe.. :) ojæja.. þá hefur maður allavena helliing af fötum.. :) ;)
Heyrðu.. ég hef bara því miður ekkert meira að segja frá þessa stundina þannig að ég er að pæla í að setja bara léttan endi á þetta.. ;) Tsjaó.... ;) ;***
Later~~~
Hata ađ finna nafn á fćrslurnar...
What'up.. ! ég vil bara byrja á að afsaka þetta bloggleysi mitt.. hef ekkert nennt að blogga þessa dagana.. ekkert merkilegt til að blogga um.. eða hvað.. ?? nenni ekki að blogga hehe.. þannig að ég er að pæla í að punkta niður bara eitthvað.. svona stuttlega það sem ég er búin að vera að gera.. :)- Ég er byrjuð að vinna á Greifanum.. það er geggjað ;) 10 sinnum skemmtilegra heldur en ég hélt.. :)
- Ég mæli með þeim sem eru að spá í að sækja um vinnu í Centro, að gera það ekki.. ! ágæt laun en nutz people.. :S :)
- Ég fór suður síðustu helgi á Sander Kleineberg.. :) það var geggjað.. reyndar hefði örugglega verið skemmtilegra ef að maður hefði ekki verið edrú, en samt þá var bara gaman að dansa og hlusta á góða tóna.. :D en þó það sem skemmdi voru allir þessir helvítis aumingjar og dópistar.að geta ekki skemmt sér án þess að vera svo freðinn að geta ekki staðið í lappirnar.. ógeðslega fólk.. það komu upp 13 fíkniefnamál sem vitað voru um.. !!! pæliði í þeim sem voru ekki vituð um.. :S
- Ég elska hann Inga minn meira en allt í heiminum ;) ;****
- Ég og Ingi erum að fara til útlanda í sumar.. 15 Júní.. úff hvað okkur hlakkar til.. gera eitthvað rómó á spáni ;) svo verður sólveig elskan rétt hjá okkur þannig að við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt.. tívolí eða jafnvel froðudiskó.. :D
- Veit einhver hvað kostar að leigja bústað á illugastöðum yfir helgi, eða kvöld eða eitthvað.. ?? :)
- Á einhver glósur úr Gylfaginningu í íslensku 303 .. ! i'm shitting in my pants...!!
- duddururuuuu.. veit ekki hvað ég á að segja meirrrrr.... !
- Hvað ætliði að gera um helgina folks.. ! ?? djamma.. ? hafa það kósí.. ?
- Ég á afmæli eftir 38 daga... jibbbíii.. !! :)
- Valentíusardagurinn í dag.. ég og Ingi vorum bara að fatta það rétt áðan.. :D hoho.. !! en æhj.. mér finnst þetta óttalega bandarískt ef ég á að segja í hreinskilni.. ! meina.. við eigum konudaginn og bóndadaginn on our own..! mér finnst það bara nóg ;) ég þarf allavena ekki neinn sérstakan dag til að sýna ást mína.. :D hehe.. *roðn* :D tíhí.. (ægilega væmin eitthvað.. :D hehe)
Heyrðu.. ég fer bara að bulla ef ég hætti þessu ekki.. ég blogga bara einhverntíman seinna þegar ég nenni.. ;) luvvss.. !! ;**
LATER~~
Yoyo...
Djamm í kvöld eða.. ?????
Ég og Ingi héldum uppá afmælið hans Inga síðustu helgi.. djöfull var það gaman.. :) þið sem komust ekki (jara og tryggvi) eruð þoooookkalega óheppin.. ;) hah... við byrjuðum á því að laga til í íbúðinni ég og Ingi áður en gestirnir komu, Ingi setti meðal annars upp nýja skenkinn/sjónvarpsskápinn sem við fengum okkur og gerði nýja 100 " skjávarpan okkar reddí.. ;) og kveiktum á nokkrum kertum, settum allskins nammi í skál og heilan helling af bjór á borðið.. svo streymdu gestirnir inn.. en þó vorum við ekki mörg.. Ég, Ingi, Bryngeir, Karen, Jara F., Höddi, Kristó, Amanda og Inga.. en samt var það bara geggjað gaman.. ég var nú að vonast að eitthvað af þessum bjór sem við áttum myndi klárast .. við þurftum að henda úr ískápnum fyrir bjór.. en það var sko örugglega helmingurinn eftir.. :) hehe.. strákarnir helltu í sig ölinu á meðan við stelpurnar fengum okkur bara mikki finns og tópas.. ;) jeee ..
Svo þegar klukkan sló hálf 2, komum við okkur niðrí bæ.. skelltum okkur á kaffi ak og dönsuðum fram á rauða nótt.. það var einhver partyvinkona sem hellti úr öllu glasinu sínu yfir hana Karen mína og var bara með kjaft þannig að auðvitað náði maður sér bara í vatnsglas á barnum og hellti ofan í buxurnar hennar ;) jeee.. svo vorum ég, Ingi , Inga og Amanda orðin soltið þreytt á þunga og reykmikla loftinu þarna inni þannig að við ætluðum að fá okkur ferskt loft en svo fengum við bara ekkert að fara aftur inn.. !! það var hætt að hleypa inn klukkan 3..! þegar það lokar 4.. ans ans.. þannig að Amanda stoppaði einhvern bíl til að fá far á Capone.. og neinei.. var þetta ekki Bu-inn.. !!! (fyrir þá sem ekki vita er það gamli rauði bíllinn hans Inga.. BU- (man ekki hvaða númer) ) ... það var algjör snilld.. þó að gaurinn sem á bílinn er alveg óttarlegt grey..! svo fórum við inná Capone en það var svo ógeðslega suddalegt fólk bara með kókaín á borðunum þannig að ég og Ingi vorum ekki lengi að drulla okkur út..! svo löbbuðum við bara aftur niðrí bæ.. ætluðum á Tikk Takk og svo bara heim.. en þá keyrðu Ásrún og Bjöggi framhjá og ég settist á húddið og ætlaði að fá smá far en neinei.. maður kannski áttar sig ekki alveg á áttum og þyngdarlögmálinu þegar maður er fullur og auðvitað flaug ég af bílnum og á götuna.. ! :/ hehha.. samt alveg nokkuð findið.. fann aðeins til í hendinni.. en þarílægi.. ;) svo fórum við á Tikk takk og fórum heim og steinrotuðumst..;) jee.. geggjað..
Jara er að reyna að draga mann útá lífið í kvöld.. spurning hvort að maður nenni því.. ég svaf alltof lengi í nótt.. einhverja 12 tíma eða svo þannig að ég held ég hafi sofið of mikið því að ég er að deyja úr þreytu.. og greinilega Ingi líka því að hann er steinrotaður í næsta herbergi.. :) þannig að það er spurning hvort að maður fari.. langar samt svo geggjað að fara.. var að kaupa mér nýjan Bol/Kjól í gallerý þannig að maður verður að flagga honum ;)
Æj.. ég sé til.. :) heyrðu já.. ég ætlaði bara aðeins að skella einhverju nýju hérna inn.. ;)
Endilega kvitta sem mest.. ;* þá skal ég kvitta á móti aight.... tsjaó.. ;) ;*;*;*;*
LATER~~~ Ingibjörg Hulda Jónsdóttir *Partyperson #1*
Gleđileg Jól og Farsćlt nýtt ár ;) ;*
Já gott fólk.. þetta ár hefur sko verið gleðilegt.. ;) og óska ég öllum vinum, fjölskyldu og öðrum landsmönnum Gleðilegs árs og farsældar á nýju ári ;) ;*;*Jólin voru yndisleg.. ég byrjaði aðfangadag með því að vakna klukkan 9 um morguninn og skella mér í VINNU.. ! það var ekki það skemmtilegasta en þó.. smá stemming ;) fullt af köllum að koma um morguninn og kaupa jólagjafir handa konunum sínum alveg á síðustu stundu..:) bara krúttlegt.. :) svo keyrði ég út örfá jólakort og svona.. ingi fór til ólafsfjarðar og ég fór heim til mömmu... ! ég komst nú ekki í klippingu vegna þess að ég var að vinna svo mikið að ég klippti mig bara sjálf.. eða toppinn.. heppnaðist það nú bara ágætlega.. ;) svo leið tíminn og við famelían fórum í kirkju eins og vanalega.. finnst ekki vera komin jól nema ég sé búin að fara í kirkju.. þó það sé ekki það skemmtilegasta í heimi :)
svo komum við úr kirkjunni og borðuðum þessa yndislegu máltíð.. Hamborgahryggur og svona.. ohh hvað það var yndislegt.. svo leið á pakkatímann og ég var roosalega sátt með allar gjafirnar mínar.. fékk meðal annars þurrkara á heimilið, yndislegt málverk, roosalega flotta vatnskönnu með glösum, kerti, nokkur body butter, Bed head body vörur, kynlífstening og margt fleira.. svo þegar leið ennþá meira á tímann kom ingi minn og náði í mig og við fórum til ólafsfjarðar.. þar biðu mín 6 pakkar.. ekki meira né minna.. ég fékk grill, náttföt og bol frá tengdó, kertastjaka frá ömmu og afa inga og yndislegan rauðan stóran náttslopp og DKNY úr frá elskunni minni ;) ;*;*
svo var bara sofið og étið yfir hátíðarnar.. allir uppgefnir eftir jólastressið og vinnuna.. :)
Ég og jara tókum okkur til og fórum að skoða mývatn með frændum hennar frá portúgal.. það var rooosalega gaman.. fórum að skoða hverana, kröflu eldfjallið og fórum svo að lokum í jarðböðin.. þetta var yndisleg ferð og afslappandi.. :)
Eftir þetta tók vinnan svo bara við.. en nú erum við komin aftur hérna á ólafsfjörð og er komið fram á síðasta daginn á árinu 2006.. :)
Jæja.. nú ætla ég að binda enda á síðasta bloggið á árinu 2006.. ;) en ég ætla að setja inn nokkra punkta hvað gerðist á þessu ári ;)
~~~~GLEÐILEG JÓL ELSKURNAR MÍNAR OG GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!! ;*;*;*~~~~
~ Ingi átti afmæli 11. janúar ;*
~ Elsku afi minn hann Víkingur Guðmundsson lést 11. janúar :( :*:*
~ Ég átti afmæli 24.mars :D
~ Ég náði öllum prófunum í skólanum :Þ
~ Það var farið á ættarmót hjá pabba, það rigndi ALLAN tímann..!
~ Það var farið á ættarmót hjá mömmu.. það var sól ALLAN tímann :D
~ Jara besta vinkona mín kom óvænt fyrr frá Brasilíu.. ;*;*
~ Ég hætti hjá Bónus og byrjaði að vinna í Centro :D
~ Jara Sól og Tryggvi byrjuðu saman og fóru saman í skóla á Möltu ;p
~ Jara og Tryggvi komu heim.. gleðstund :D
~ Ég náði öllum prófunum í skólanum nema stærðfræði :(
~ Ingi byrjaði að vinna í Centro :D
~ Ég, Ingi og Jara fengum að keyra Hummerinn hans Úlla :D jibbíi..
~ Ég og Ingi erum enn að spá í að fá okkur hund :D Sheffer ;) jee
æhj.. veit ekki hvað ég á að nefna fleira.. :D bæti fleiru við seinna og myndum líka.. :D geggjaaaað.. :D Allir að hafa gaman um áramótin.. sé ykkur á djamminu.. ;)
Gleðilegt ááááár.. :D:D
Jólastress.... (Ţriđjudagur... eđa uu miđvikudagurinn 20. des..)
Hæj hæj.. jáá.. það hefur sko verið jólastress í fólki undanfarna daga.. samt kannski ekkert það mikið.. en það kemur þegar fólk áttar sig að það eru komin jól og ekki búin að gera það sem gera þarf.. ! Þess vegna fékk ég frí í vinnunni í dag til að gera allt sem gera þyrfti fyrir jól.. og er ég næstum þvi búin að því.. fyrir utan að ég gleymdi að fara að tjekka á gjöfinni hennar mömmu.. hún er að koma að sunnan og gaurarnir sögðust ætla hringja þegar hún myndi koma en það er nefnilega með þessa gaura að þeir hringja aldrei til baka.. arg..! en jæja.. svona er þetta bara í þessum tækjaverslunum.. en já.. ég hef bara verið að vinna og vinna og vinna.. er búin að vera að vinna alla daga síðan ég hætti í prófunum og verð að vinna alla dagana það sem eftir er af þessum mánuði nema 25. og 26. úff.. eeen maður verður nokkuð ánægður þegar maður fær launaseðilinn.. :) jæja.. annars er ég á síðasta snúningi með pakkana sem ég ætla að senda suður.. eeeen.. síðasti öruggi dagurinn er á morgun .. þannig að það sé öruggt að þetta komist suður.. þannig að ég er í góðu lagi.. afhverju enda allir á að vera alltaf á síðasta snúning fyrir jól.. hugsa kannski flestir eins og ég .. æj ég hef nógan tíma til að gera þetta seinna.. frestar því alltaf en svo áttar maður sig á því seinna að maður hefur engan tíma..ég og jara fórum í bíó áðan.. það var nokkuð gaman.. fórum á Dejavu.. hún er bara nokkuð góð.. frekar skrítin mynd þó.. ohh hvað ég var við það að snúa mér við og kíla gaurana sem voru fyrir aftan okkur.. meen hvað þeir voru leiðinlegir.. voru að segja bara omg hvað þetta er ógeðslega leiðinleg mynd og eitthvað blablabla.. DRULLAÐU ÞÉR ÞÁ ÚT!!!! ííghj.. þoli ekki svona pakk... annaðhvort geta þeir bara setið og þagað eða gera öllum greiða og farið út.. :)
mig hlakkar alveg óendanlega mikið til jólanna..!!! elska jólin.. besti tími í heimi.. er svo hamingjusöm á jólunum.. enda engin önnur ástæða til.. :) gæti ekki átt betra líf held ég.. :) svo margir sem kunna ekki að meta lífið sitt.. .. fyrr en á jólunum.. kannski..!
ég var einmitt að tala við mömmu og reimar áðan um að mér finnst sjálfsvíg bara eintóm sjálfselska.. ég meina.. ókei manni líður voðalega illa og svoleiðis... en það er hægt að laga það og hjálpa manni.. en í staðinn tekur manneskjan lífið sitt og lætur öllum sem hann þekkti líða illa.. ef að mér liði svona illa myndi ég gera allt annað heldur en að taka lífið mitt því að með því er ég að særa alla í kringum mig.. en þó gerðu mamma og reimar mér grein fyrir því að fólk getur ekkert að þessu gert.. þunglyndi er nottla skelfilegur sjúkdómur og fólkið er ekkert að hugsa út í hvort þetta muni særa aðra eða ekki.. en æhj.. veit það ekki.. finnst þetta bara svo leiðinlegt.. það er svona.. ekki allir með sömu skoðanir.. =)
Mig langar annars þó nokkuð á djammið.. :) er ekki búin að djamma alminnilega lengi.. væri samt alveg til í að það væri svona staður hérna eins og í dansmyndunum.. hehe.. svona staðir sem eru spiluð hiphop tónlist og allir dansa geggjað vel og breika og svoleiðis.. :D það væri heavy.. :)
Ég og Ingi fórum í Ab-búðina í dag.. hann náði nottla að kaupa sér flugmódel og er alveg að missa sig í að líma eitthvað stöff saman og svoleiðis.. hehe.. hann var líka að tala áðan um að hann langaði að opna skartgripabúð.. :) algjört yndi ;) ;*
SHITTTURIIIIIINNNN!!!! eruði búin að sjá vatnið hjá glerárbrúnni.. hjá endurvinnslunni og þar.. Fokk.. myndi ráðleggja ykkur að fara og sjá þetta.. shitt skohh.. það var svo stór pollur við hliðiná brúnni að vegurinn hrundi undan þessu.. eða mölin eða eitthvað.. búið að loka þetta af og shit.. ! geðveikt .. ég keyrði 4 sinnum ofan í hann og svona 8 sinnum á hringtorgið og 3 yfir hinn stóra pollinn á milli hringtorganna.. uss.. geðveikt..!!!!
Jább jább.. held þetta sé bara komið nóg.. blogga vonandi fljótlega aftur ;) bæjóó.. ;*;*;*
Kvitta beibs.. ;) ;*
LATER~~ Ingibjörg Hulda Jónsdóttir